Ég heiti Wioletta, ég og maðurinn minn Hjörtur erum búin að vera passa hunda í 4+ ár. Við bjóðum upp á pössun heima hjá okkur EKKI hjá eigand. Hundar er mitt stærsta áhugamál, ég hef lært mikið um þá og umhirðu þeirra. Ég einnig vann á hundahóteli í smá tima og þar lærði ég mikið. Við eigum einn Labrador rakka sem heitir Aragon, hann er 2 ára. Hann er geldur. Hann er mjög blíður og góður við alla, hann elskar að leika og djöflast með hunda-vinum sínum. Við eigum heima í Sandgerði, í raðhúsi með stóran lokaðan garð þar sem hundarnir eru með meira en nóg pláss til að eltast og leika🥰 Ég vinn upp á vellinum á 2-2-3 vöktum, frá 4-12, og maðurinn minn Hjörtur vinnur alla virka daga frá 8-16 þannig hundar eru einir heima í 4 tíma max. Við elskum að fara út í ævintýri með hundunum sem koma til okkar, alltaf mikið fjör.
Umsagnir
Engar umsagnir enn