Fyrst viljum við þakka þér fyrir að nota Dýraþjónustuna.
Þar sem þjónustan byggist á bókunum hjá sjálfstæðum þjónustuaðilum gilda eftirfarandi skilmálar um endurgreiðslur, afbókanir og ágreining.
Dýraþjónustan selur ekki vörur sem hægt er að skila. Allar pantanir snúa að tímabundinni þjónustu sem veitt er af sjálfstæðum þjónustuaðilum.
„Þjónustugjöld“ vísa til gjalda sem tengjast rekstri vettvangsins og/eða greiðsluferli, t.d. þóknun Dýraþjónustunnar og möguleg gjöld greiðsluþjónustu. Þjónustugjöld kunna að vera óendurkræf að hluta eða öllu leyti, eftir atvikum, nema annað sé sérstaklega tekið fram.
Afbókanir skulu framkvæmdar í gegnum notendaaðgang á vefsíðu Dýraþjónustunnar eða með tölvupósti á dyrathjonustan@dyrathjonustan.is.
Athugið: Tímasetning miðast við þann tíma sem þjónusta átti að hefjast samkvæmt bókun.
Ef eigandi mætir ekki, afhendir ekki dýr, eða þjónustuaðili fær ekki aðgang/aðstæður til að framkvæma þjónustu (t.d. vegna rangra upplýsinga), telst það almennt sem afbókun með minna en 24 klst. fyrirvara.
Ef þjónustuaðili afbókar staðfesta bókun fær dýraeigandi fulla endurgreiðslu (þ.m.t. þjónustugjöld, nema aðstæður falli undir undantekningar sem skýrt er frá við bókun).
Við getum einnig aðstoðað við að finna annan þjónustuaðila ef þess er óskað.
Hafðu samband á: dyrathjonustan@dyrathjonustan.is
Ef þú ert óánægð/ur með veitta þjónustu, vinsamlegast hafðu samband innan 48 klst. frá því að þjónustu lauk eða henni var rofið.
Til að við getum metið málið skaltu senda:
Við metum hvert mál sérstaklega og tökum afstöðu til þess hvort endurgreiðsla, hlutaendurgreiðsla eða önnur lausn eigi við.
Sendu á: dyrathjonustan@dyrathjonustan.is
Ef endurgreiðsla er samþykkt, er hún afgreidd innan 7 virkra daga með sama greiðslumáta og notaður var við bókun. Athugið að bankar og greiðsluþjónustur geta tekið viðbótartíma í úrvinnslu.
Dýraþjónustan ehf. áskilur sér rétt til að uppfæra þessa skilmála hvenær sem er. Nýjustu skilmálar eru alltaf aðgengilegir á vefsíðu okkar og taka gildi við birtingu.
Ef þú hefur spurningar eða þarft aðstoð, hafðu samband:
dyrathjonustan@dyrathjonustan.is
Síðast uppfært: 6. janúar. 2026