Á vefsíðunni dyrathjonustan.is getur þú bæði leitað að þjónustu fyrir dýrið þitt og boðið fram aðstoð sem þjónustuaðili á einfaldan, öruggan og notendavænan hátt.
Það kostar ekkert að skrá sig og allir geta verið með!
Þú byrjar á því að stofna aðgang sem leiðir þig inn á þitt stjórnborð, þar sem þú getur svissað á milli þess að vera eigandi eða þjónustuaðili:
Eigandi: Þá getur þú leitað eftir þjónustu eins og pössun, heimsóknum, snyrtingu, þjálfun og fleiru fyrir þín dýr.
Þjónustuaðili: Þá gtur þú boðið fram þá þjónustu sem þú vilt taka að þér og valið hvaða verkefni þú vilt sinna.
Þegar eigandi finnur rétta aðila fyrir sitt dýr getur hann annaðhvort sent skilaboð eða bókun. Þjónustuaðili fær þá tilkynningu um að óska sé eftir þjónustu á tilteknum dögum og getur annaðhvort samþykkt eða hafnað. Ef þjónustuaðili samþykkir fær eigandi staðfestingu ásamt greiðslubeiðni. Þegar bókunin er samþykkt og greidd telst þjónustusamningur staðfestur.
Við mælum með að eigandi og þjónustuaðili noti spjallið inni á síðunni til að sammælist um tímasettningar, staðsetningu og önnur atriði sem þurfa að liggja fyrir til að þjónustan gangi sem best.
Greiðslan fer í gegnum öruggt kerfi Rapyd og þjónustuaðili fær greitt eigi síður en 3 dögum efit að þjónustu lýkur.
Við hvetjum svo alla eigendur að skrifa umsögn að þjónustu lokinni en þannig byggjum við upp traustara kerfi fyrir alla.
Á heimasíðu Dýraþjónustunnar getur þú:
Fylgst með bókunum þinum og átt í samskiptum á þínum aðgangi.
Gefið umsagnir eftir þjónustu.
Byggt upp traust og tengsl við aðra dýraunnendur.
Við leggjum ríka áherslu á öryggi og gagnsæi í öllum samskiptum. Þóknunin okkar er einföld og sanngjörn – 10% af þjónustuverði og hún dregst frá greiðsluna. Engin föst áskriftargjöld og engin falin gjöld.
Dæmi: Pössun fyrir einn hund í einna viku kostar eiganda 28.000 kr.
Dýraþjónustan ehf tekur 10% eða 2800 kr
Þjónustuaðili fær 25.200 kr.
Nei, það kostar ekkert að stofna aðgang á Dýraþjónustunni!
Hvort sem þú ert eigandi, þjónustuaðili eða bæði, þá greiðir þú ekkert við skráningu.
Þóknun Dýraþjónustunnar er aðeins tekin þegar þjónusta fer fram og hún er 10% af þjónustuverði. Þóknunin dregst af greiðslunni áður en hún er greidd til umönnunaraðilans.
Dæmi: Pössun fyrir einn hund í einna viku kostar eiganda 28.000 kr.
Dýraþjónustan ehf tekur 10% eða 2800 kr
Þjónustuaðili fær 25.200 kr.
Allt ferlið er gagnsætt, þ.e.a.s. verð, þóknun og greiðsluflæði koma skýrt fram áður en bókun og greiðsla fara fram.
Ef þjónustuaðili mætir ekki eða afbókar með stuttum fyrirvara, getum við aðstoðað við að útvega annan þjónustuaðila. Í neyðartilvikum á höfuðborgarsvæðinu getum við tekið dýr tímabundið á okkar heimili eða kallað til aðstoðarfólk á svæðinu fyrir þau dýr sem eru lengra frá höfuðborgarsvæðinu. Þú færð endurgreitt ef þjónustan fer ekki fram.
Við hvetjum einnig þá sem hafa tök á að skrá sig á póstlista þeirra sem við getum leitað til ef þjónusta rofnar. Til dæmis ef þjónustuaðili forfallast og dýr þarf tafarlausa nýja umönnun.
Þú þarft ekki að skuldbinda þig. Við sendum aðeins skilaboð þegar þörf er á og ef þú ert tiltæk(ur), getur þú orðið bjargvættur þegar mest á reynir.
Þjónustuaðilinn skráir sig með upplýsingum um reynslu, staðsetningu og hvaða þjónustu þeir vilja bjóða. Þú getur lesið prófíl þeirra, skoðað umsagnir frá öðrum notendum og átt í samskiptum í gegnum spjallið áður en þú bókar. Við fylgjumst líka með þjónustugæðum og getum lokað aðgangi ef við fáum slæma endurgjöf.
Já auðvitað!
Full endurgreiðsla:
Ef þjónusta er afbókuð með meira en 48 klst. fyrirvara, er veitt full endurgreiðsla (að frádregnum þjónustugjöldum).
50% endurgreiðsla:
Ef afbókun berst með 24–48 klst. fyrirvara, er veitt 50% endurgreiðsla (að frádregnum þjónustugjöldum).
Engin endurgreiðsla:
Ef afbókun berst með minna en 24 klst. fyrirvara, er ekki veitt endurgreiðsla.
Afbókanir skulu framkvæmdar í gegnum notendaaðganginn þinn á vefsíðu Dýraþjónustunnar eða með því að senda tölvupóst á dyrathjonustan@dyrathjonustan.is.
Þú greiðir í gegnum öruggt greiðslukerfi Rapyd eftir að þjónustuaðili hefur samþykkt bókunina. Þóknun fyrir þjónustuna dregst frá verðskrá passara og er sýnd greinilega áður en greiðsla fer fram. Þjónustuaðilinn fær ekki greitt fyrr en þjónustunni er lokið.
Við viljum leggja áherslu á traust.
Við skiljum vel að það getur verið stór ákvörðun að treysta ókunnugum fyrir dýrinu sínu. Þess vegna getur þú skoðað prófíla, umsagnir, staðsetningu og verð áður en þú velur þér þjónustuaðila. Öll samtöl fara í gegnum öruggt spjallkerfi og greiðslan er ekki greidd út til þjónustuaðila fyrr en þjónustu er lokið. Þú velur og hefur alltaf stjórn á því hver sinnir þínu dýri. Umsagnir eigenda eru svo lykilatriði í að hjálpa til við að byggja upp traust fyrir alla.
Það er einfalt að byrja!
Þú byrjar á því að skrá þig inn með netfangi og býrð þér til prófíl.
Þar getur þú skipt á milli hvort þú viljir leita að þjónustu fyrir dýrið þitt eða bjóða fram þjónustu sem þjónustuaðili.
Síðan getur þú:
Leitað að þjónustuaðila.
Skoðað prófíla, verð og umsagnir.
Haft samband, bókað og greitt, allt í gegnum öruggt kerfi á síðunni.
Þú hefur fulla stjórn á ferlinu og getur hafið notkun strax eftir innskráningu.
Já!
Allir sem elska dýr eru velkomnir á Dýraþjónustuna.
Hvort sem þú ert dýraeigandi sem þarft aðstoð eða vilt bjóða fram þjónustu sem þjónustuaðili, þá getur þú skráð þig frítt og byrjað.
Til að bóka þjónustu þarftu einfaldlega að stofna aðgang og skrá dýrið þitt. Þá getur þú valið þjónustu og dagsetningar sem henta.
Ef þú vilt bjóða fram þjónustu sem þjónustuaðili þarftu að vera að minnsta kosti 18 ára og skrá þig með netfangi. Þú setur inn stuttar upplýsingar um þig, hvaða dýr og verkefni þú vilt taka að þér, ásamt því hvar og hvenær þú ert tiltækur. Að skráningu lokinni getur þú hafið þjónustu strax.
Við mælum með að öll dýr sem fá þjónustu í gegnum Dýraþjónustuna séu tryggð með gæludýratryggingu hjá tryggingafélagi.
Dýraþjónustan ber ekki ábyrgð á slysum, veikindum eða öðrum óhöppum sem kunna að eiga sér stað meðan þjónusta fer fram. Dýrin eru undir umsjá þjónustuaðila á ábyrgð eiganda, og eiganda ber að tryggja sitt dýr með viðeigandi hætti.
Þjónustuaðilar eru hvattir til að tryggja verðmæti sín og setja skýr mörk varðandi aðgengi dýra að heimilisbúnaði meðan á vistun stendur.
Ábyrgðartrygging fyrir gæludýr er í boði á Íslandi. Slík trygging getur bætt tjón sem dýr veldur þriðja aðila, til dæmis ef hundur skemmir húsgögn á heimili þjónustuaðila eða veldur líkams- eða munatjóni.
Hvað er ábyrgðartrygging fyrir gæludýr?
Ábyrgðartrygging er vátrygging sem bætir tjón sem dýr veldur öðrum, hvort sem um er að ræða skemmdir á munum eða líkamsmeiðsli. Hún er oft hluti af gæludýratryggingum sem tryggingafélög á Íslandi bjóða upp á.
Hvar fæ ég slíka tryggingu?
Nokkur tryggingafélög á Íslandi bjóða upp á gæludýratryggingar sem innihalda ábyrgðartryggingu:
Sjóvá: Býður upp á hundatryggingu sem getur innihaldið ábyrgðartryggingu. sjova.is
VÍS: Býður upp á ábyrgðartryggingu fyrir hunda og ketti sem hluta af gæludýratryggingum. vis.is
Vörður: Býður upp á gæludýratryggingar sem innihalda ábyrgðartryggingu fyrir hunda og ketti. vordur.is
TM: Býður upp á gæludýratryggingar sem innihalda ábyrgðartryggingu. tm.is
Hvað ætti ég að hafa í huga?
Kynntu þér skilmála: Tryggingarskilmálar geta verið mismunandi milli tryggingafélaga. Sumar tryggingar ná aðeins yfir ákveðnar tegundir tjóna eða hafa takmarkanir eftir aldri eða tegund dýrsins.
Tilkynntu þjónustuaðila: Láttu þjónustuaðilann vita ef dýrið þitt hefur sögu um kvíða, eyðileggjandi hegðun eða hegðunarvanda.
Hafðu samband við tryggingafélagið: Ef þú ert í vafa um hvort dýrið þitt sé rétt tryggt, hafðu samband við tryggingafélagið þitt til að fá nánari upplýsingar.
Með því að tryggja dýrið þitt með ábyrgðartryggingu geturðu veitt bæði þér og þjónustuaðilanum aukið öryggi og hugarró.
Þegar þjónustan sem þú veitir er lokið færð þú greitt í gegnum öruggt greiðslukerfi Dýraþjónustunnar. Greiðslan er millifærð inn á bankareikninginn þinn innan 3 virkra daga.
Dæmi:
Ef þú sinnir pössun sem lýkur á föstudegi, þá er greiðslan yfirleitt greidd út mánudag eða þriðjudag.
Þóknun Dýraþjónustunnar (10%) er dregin frá áður en greiðslan fer fram. Þú getur alltaf fylgst með stöðu bókana og greiðslna inn á þínum aðgangi.
Já, við leggjum mikla áherslu á öryggi og trúnað. Við söfnum aðeins þeim gögnum sem nauðsynleg eru til að veita þjónustuna og við deilum aldrei upplýsingum með óviðkomandi aðilum.
Greiðslur fara í gegnum örugga greiðslugátt og samskipti milli notenda fara fram í lokuðu spjallkerfi innan vefsins.
Þú getur lesið nánar um hvernig við vinnum með gögnin þín í Persónuverndarstefnu okkar.
Dýraþjónustan leggur mikla áherslu á að bæði dýraeigendur og þjónustuaðilar upplifi traust og öryggi í gegnum allan ferilinn, frá fyrstu samskiptum til þjónustuloka. Við höfum innleitt nokkrar aðgerðir til að stuðla að öruggri og ábyrgri notkun:
Reglulegt eftirlit með þjónustuaðilum og bókunum
Allir sem skrá sig sem þjónustuaðilar þurfa að uppfylla lágmarksskilyrði og samþykkja skilmála Dýraþjónustunnar.
Við fylgjumst reglulega með virkni, umsögnum og hegðun notenda á vefnum.
Ef eitthvað grunsamlegt kemur upp, getur notandi verið afvirkjaður eða færður úr birtingu.
Einfalt að tilkynna vandamál
Ef eitthvað kemur upp, t.d. ef dýr fær ekki umönnuð eins og samið var um, biðjum við þig að tilkynnt það beint til okkar með því að hafa samband á dyrathjonustan@dyrathjonustan.is .
Við grípum inn í, skoðum málið tafarlaust og komum dýrinu í öruggar hendur ef þarf.
Öruggt bókunar- og greiðslukerfi
Þegar þú bókar þjónustu greiðir þú í gegnum öruggt greiðslukerfi Rapyd.
Greiðslan er geymd þar til þjónustunni er lokið og hefur verið staðfest.
Þjónustuaðilinn fær ekki greitt fyrr en dýrið hefur fengið þá umönnun sem samið var um. Þetta tryggir bæði aðgengi að lausnum ef eitthvað fer úrskeiðis og jafnvægi í viðskiptunum.
Umsagnir og gagnsæi
Eftir að þjónustu lýkur er mikilvægt að gefa umsögn um þjónustuna til að síðan virki sem best fyrir eigendur.
Þannig byggist traust og gagnsæi smám saman og þú getur valið aðila út frá raunverulegri reynslu annarra notenda.
Þjónustuver sem grípur inn í ef þarf
Ef alvarlegt atvik á sér stað meðan á þjónustu stendur, t.d. veikindi, slys eða óvenjuleg hegðun dýrs á alltaf að hafa strax samband við dýraeiganda. Ef ekki næst í eigandi, skal hafa samband við neyðaraðila samkvæmt fyrirfram samkomulagi.
Í brýnum tilfellum sem krefjast tafarlausrar aðstoðar skal hafa samband við vakthafandi dýralækni í viðkomandi landshluta. Neyðarnúmer dýralækna má finna á mast.is.
Dýraþjónustan getur einnig gripið inn í ef þjónustuaðili kemst ekki til dýrsins eða ef þjónusta rofnar af öðrum ástæðum. Við getum tekið við dýrum tímabundið ef þarf, eða virkjum staðbundna aðstoð.
Dýraeigendur bera ábyrgð á því að láta þjónustuaðila vita af:
Sérþörfum eða veikindum dýrs
Hvaða dýralækni á helst að hafa samband við
Hvaða ákvarðanir megi taka ef ekki næst í eiganda
Við mælum með að þessar upplýsingar séu skráðar strax við bókun.
Áður en dýrið fer í pössun er gott að vera með nokkra hluti á hreinu og gott að skiptast á upplýsingum um eftirfarandi atriði
Hver er dýralæknir dýrsins og hvernig er hægt að ná í hann?
(T.d. nafn dýralæknis, símanúmer og opnunartímar)
Hvernig er skapgerð dýrsins?
(Er það feimið, varkárt, orkumikil, með sérstakar venjur?)
Er dýrið með ofnæmi, lyf eða heilsufarsvandamál?
(Hvaða lyf þarf að gefa og hvenær? Hvaða mat má dýrið ekki fá)
Er eitthvað sem dýrið óttast eða þolir illa?
(T.d. flugeldar, hávaði, aðskilnaður, önnur dýr, börn
Hvenær og hvað á dýrið að borða?
(Tegund fóðurs, skammtastærðir, gjafartímar, fóðuróþol)
Hvernig er svefnvenja dýrsins?
(Hvar sefur það? Þarf það að fara út á nóttunni? Þarf það að sofa nálægt fólki? Sefur það í búri?)
Hvaða reglur gilda heima?
(Má dýrið fara upp í sófa eða rúm? Á það að vera í búr? Á það að fá með sér teppi eða bangsa?)
Hvernig gengur dýrið í göngu eða umgengni við önnur dýr og fólk?
(Dregur það? Klósettvenjur? Hentar það í samvistum við börn eða önnur dýr?)
Hvern má að hafa samband við ef eitthvað kemur upp og ekki næst í eiganda?
(T.d. vinur eða fjölskyldumeðlimur)
Er dýrið tryggt og ef svo er, hjá hvaða tryggingafélagi?
(Tryggingafélag)
Spurningar sem gott er fyrir eigendur að spyrja.
Hefur þú áður passað svona dýr eða svipað?
(Sérstaklega mikilvægt ef dýrið er með sérþarfir, kvíða eða lyfjameðferð)
Hvar mun dýrið dvelja og sofa?
(Er það í sameiginlegu rými? Í sérherbergi? Með öðrum dýrum? má dýrið mitt sofa uppí? Íbúð eða hús? Garður? )
Eru önnur dýr á heimilinu?
(Getur skipt máli fyrir samvistir og hegðun)
Hvernig er dagleg rútína í pössun?
(Tímasetningar á útivist, matartíma, svefn o.fl.)
Fær dýrið næga hreyfingu og örvun meðan á vistun stendur?
(Hversu oft er boðið upp á hreyfingu og hversu lengi)
Hefur þú aðgang að bíl eða hjálp ef upp koma neyðartilvik?
(Skiptir máli ef dýrið veikist eða þarf tafarlausa aðstoð)
Hvernig höfum við samband ef eitthvað kemur upp?
(Er best að nota síma, tölvupóst eða skilaboð í gegnum kerfið?)
Get ég fengið myndir eða stöðuuppfærslur meðan á þjónustu stendur?
(Mörgum eigendum veitir það mikinn frið í hjartað)