Skilmálar og skilyrði

Skilmálar og skilyrði 

 

Gildir fyrir dýraeigendur og þjónustuaðila sem nota vef Dýraþjónustunnar ehf.
Með því að skrá sig og/eða nota þjónustuna samþykkir notandi þessa skilmála.

 

Hlutverk Dýraþjónustunnar

  • Dýraþjónustan ehf. rekur stafrænan vettvang sem tengir saman dýraeigendur og þjónustuaðila.
  • Samningur um framkvæmd þjónustu er gerður milli eiganda og þjónustuaðila. Dýraþjónustan ehf. er að jafnaði ekki aðili að samningi þeirra, heldur miðlar tengingu og heldur utan um bókunar- og greiðsluferli eftir því sem við á.
  • Dýraþjónustan ehf. getur, eftir atvikum, aðstoðað við samskipti, ágreining eða lausn mála, en ber ekki ábyrgð á framkvæmd þjónustu nema sérstaklega sé tekið fram.

 

Fyrir dýraeigendur

  • Ábyrgð og upplýsingagjöf eiganda
    Eigandi skal tryggja að dýrið sé heilbrigt, bólusett og meðhöndlað gegn sníkjudýrum samkvæmt ráðleggingum dýralæknis.

Eigandi ber ábyrgð á að veita réttar og fullnægjandi upplýsingar um dýrið, þar á meðal:

  • heilsufar, fóður, lyfjagjöf, ofnæmi, hegðun og sérstakar þarfir
  • umhirðu, venjur, er dýrið gelt eða ekki og öryggisatriði (t.d. taumganga, lausaganga, flóttahætta o.fl)
  • Val á þjónustuaðila
    Eigandi ber ábyrgð á vali á þjónustuaðila úr skráðum aðilum á vef Dýraþjónustunnar.
    Dýraþjónustan ehf miðlar aðeins tengingu milli eiganda og passara og ber ekki ábyrgð á framkvæmd þjónustunnar.
  • Greiðslur, afbókanir og endurgreiðslur
    Greiðslur fyrir þjónustu fara fram í gegnum öruggt greiðslukerfi Rapyd á vef Dýraþjónustunnar. Afbókanir og endurgreiðslur fara samkvæmt Endurgreiðslu- og afbókunarskilmálum Dýraþjónustunnar sem gilda hverju sinni og eru birtir á vefnum og/eða sýndir við bókun.
  • Neyðartilvik
    Eigandi skal, áður en þjónusta hefst, tryggja að þjónustuaðili hafi aðgang að nauðsynlegum upplýsingum í neyð, t.d.:
    • hvaða dýralækni skal hafa samband við (ef við á).
    • neyðarnúmer og upplýsingar um heimild til að leita aðstoðar.

Ef óvæntar aðstæður koma upp, svo sem veikindi þjónustuaðila, mun Dýraþjónustan ehf leitast við að finna annan viðeigandi þjónustuaðila eða, ef nauðsyn krefur, taka við dýrinu tímabundið á eigin heimili.

Eigandi samþykkir að ef slys gerist utan afgreiðslutíma verður haft samband við vakthafandi dýralækni á þeim stað sem þjónustan fer fram.

Þjónustuaðili ber ábyrgð á að kynna sér viðeigandi neyðarnúmer og viðbragðsaðila.

  • Öryggi og ábyrgð
    Eigandi samþykkir að Dýraþjónustan ehf. beri ekki ábyrgð á tjóni á dýri eða eignum sem kann að verða vegna þjónustu sem er framkvæmd af þjónustuaðila, nema um sé að ræða tjón sem rekja má til stórfellds gáleysis eða ásetnings af hálfu Dýraþjónustunnar ehf.


Fyrir þjónustuaðila

  • Skráning og hæfi
        • Þjónustuaðili skal vera 18 ára eða eldri og skrá sig með réttum og fullnægjandi upplýsingum.
        • Dýraþjónustan ehf. áskilur sér rétt til að óska eftir frekari upplýsingum, sannreyna upplýsingar og hafna skráningu eða loka aðgangi ef ástæða þykir til, m.a. vegna rangra upplýsinga, brota á skilmálum eða öryggissjónarmiða.
  • Framkvæmd þjónustu og ábyrgð
    Þjónustuaðili skuldbindur sig til að:
        • veita dýrinu umönnun í samræmi við upplýsingar og leiðbeiningar eiganda
        • gæta að velferð dýrsins og viðeigandi öryggi í umgengni, heimili og útiveru
        • tilkynna eiganda tafarlaust um óvænt atvik eða breytingar sem geta haft áhrif á velferð dýrsins
  • Greiðslur og afbókanir
    Greiðslur/uppgjör til þjónustuaðila fara fram í gegnum greiðslukerfi Dýraþjónustunnar eigi síðar en þremur virkum dögum eftir að þjónustu lýkur. Afbókanir og endurgreiðslur fara fram samkvæmt Endurgreiðslu- og afbókunarskilmálum.
  • Umsagnir, stjörnugjöf og gæðakröfur
    Dýraþjónustan ehf áskilur sér rétt til að safna og birta umsagnir og stjörnugjöf um þjónustuaðila.
    Ef þjónustuaðili uppfyllir ekki gæðakröfur, brýtur skilmála eða veldur endurteknum kvörtunum getur Dýraþjónustan ehf. takmarkað eða lokað aðgangi að þjónustunni.
  • Öryggi og ábyrgð
    Þjónustuaðili samþykkir að Dýraþjónustan ehf. beri ekki ábyrgð á tjóni á dýri eða eignum sem kann að verða vegna þjónustu, nema um sé að ræða tjón sem rekja má til stórfellds gáleysis eða ásetnings af hálfu Dýraþjónustunnar ehf.
  • Neyðartilvik
    Þjónustuaðili skal:
      • hafa tiltækar upplýsingar um hvaða dýralækni/neyðarþjónustu skal hafa samband við
      • kynna sér viðeigandi neyðarnúmer og viðbragðs leið á því svæði sem þjónustan fer fram
      • grípa til nauðsynlegra ráðstafana til að tryggja velferð dýrsins ef neyð skapast

 

Almenn ákvæði

  • Notkun þjónustu og reglur
    Notandi skuldbindur sig til að:
      • veita réttar upplýsingar og fara eftir skilmálum
      • gæta kurteisi í samskiptum og misnota ekki vettvanginn
      • virða lög og reglur um meðferð dýra

Dýraþjónustan ehf. áskilur sér rétt til að grípa til aðgerða vegna misnotkunar, rangra upplýsinga, svika eða brota á skilmálum, þar á meðal að loka aðgangi.

  • Breytingar á skilmálum
    Dýraþjónustan ehf. áskilur sér rétt til að breyta skilmálum hvenær sem er.
    Breytingar taka gildi við birtingu á vefnum. Ef breytingar eru verulegar munum við leitast við að upplýsa notendur með sýnilegum hætti.


Hafðu samband

Ef þú hefur spurningar um skilmála eða þjónustu getur þú haft samband: dyrathonustan@dyrathjonustan.is

Síðast uppfært: 6. janúar 2026