Um Dýraþjónustuna

Velkomin á vefsíðu Dýraþjónustunar

Dýraþjónustan ehf er íslenskt fjölskyldufyrirtæki staðsett á höfuðborgarsvæðinu, stofnað af fólki með áralanga reynslu af dýrum , allt frá smádýrum til hrossa. Við sameinum ástríðu fyrir velferð dýra og skilning á fjölbreyttum þörfum þeirra með nútímalegri lausn sem einfaldar líf dýraeigenda og tryggir umhyggju, öryggi og traust.

Við vitum að hópvistun hentar ekki öllum dýrum. Sum þurfa rólegra umhverfi, meiri nánd eða einstaklingsmiðaða umönnun. Dýraþjónustan tengir dýraeigendur við dýraunnendur um allt land sem geta sinnt dýrum í heimahúsi, komið í heimsókn, farið í göngutúra, fóðrað, eða boðið tímabundna vistun, allt eftir því hvað hentar dýrinu best.

Þjónustan er opin fyrir öll dýr,  hunda, ketti, hesta, fugla, nagdýr, fiskar og fleiri. Sérflokkur, „Annað“, tryggir að öll dýr fái pláss.

Fyrir dýraeigendur veitum við örugga lausn með traustum þjónustukerfi, þar sem hægt er að skoða prófíla, verð og umsagnir, og bóka með öruggum greiðslum og einföldu spjallkerfi. Ef eitthvað kemur upp, t.d. að þjónustuaðilinn forfallist, en  þá gerum við okkar besta til að grípa inn í og getum jafnvel tekið á móti dýrum í neyðartilvikum sjálf á okkar heimili.

Fyrir þjónustuaðila býður Dýraþjónustan upp á sveigjanlegt tækifæri til að umgangast dýr án þess að þurfa að skuldbinda sig til dýraeignar. Þjónustuaðilar velja sjálfir hvenær, hvar og hvaða þjónustu þeir taka að sér, og hafa aðgang að fjölbreyttum verkefnum í sínu nærsamfélagi. Við setjum 18 ára aldurstakmark og fylgjumst vel með gæðum, við getum lokað á aðgang þeirra sem ekki standa sig.

Við leggjum áherslu á siðferðilega, ábyrg og umhverfisvæna nálgun. Vistun fer fram á heimilum.  Þjónustan byggir á gagnkvæmu trausti, dýravelferð og hlýju mannlegu sambandi.

 

En af hverju að velja Dýraþjónustuna?

Hugmyndin kviknaði út frá einfaldri þörf, að gera dýraeigendum auðveldara að fá aðstoð þegar lífið er á fullu og um leið skapa tækifæri fyrir dýravini sem vilja umgangast dýr, jafnvel þó þeir geti ekki átt dýr sjálf.

Stofnandi Dýraþjónustunnar er með menntun í búvísindum, reynslu úr dýraheiminum og óbilandi áhuga á velferð dýra. Markmiðið er skýrt: að byggja upp vettvang þar sem dýr fá þá umhyggju sem þau eiga skilið og fólk finnur lausn sem hentar þeirra aðstæðum.

Þetta er aðeins byrjunin því við vinnum stöðugt að því markmiði að þróa þjónustuna okkar og horfa fram á við. Það er alltaf hægt að bæta öryggi og gæði þjónustunnar.

Við hlökkum til að byggja upp öflugt samstarf með samfélagi fólks sem vill það sama og við:
Að öll dýr fái að njóta þeirrar umhyggju sem þau eiga skilið.