Þjónusta fyrir öll dýr

Hvernig virkar þjónustan

1.

Leita

Dýraeigandi velur þá þjónustu sem þarf, eins og göngutúr, pössun, heimsókn eða snyrtingu og setur inn dagsetningu. Þú getur þá séð prófíla þjónustuaðila, verð, staðsetningu og umsagnir til að finna þann sem hentar þér og dýrinu þínu best.

2.

Bóka

Notaðu örugga spjallið til að senda þjónustuaðila skilaboð. Ræddu þjónustuna, tímasetningar og hvernig þú vilt að umönnunin fari fram. Þegar þið eruð sammála bókar þú og greiðir fyrir þjónustuna.

3.

Njóta

Nú er tími til að njóta.
Þjónustuaðilinn nýtur þess að vera með dýrinu þínu og sinnir því samkvæmt samkomulagi.
Þú getur slakað á og vitað að dýrið þitt er í góðum höndum.

 

4.

Staðfesta

Þegar þjónustunni er lokið fær þjónustuaðilinn greitt í gegnum öruggt greiðslukerfi.
Það er líka vel þegið ef þú gefur stjörnur og skrifar umsögn, þannig hjálpar þú öðrum að finna góða þjónustu og styður við þá sem sinna dýrunum af alúð.

Af hverju að nota Dýraþjónustuna

Fyrir Dýrin

  • Dýrin fá persónulega og einstaklingsmiðaða umönnun í heimahúsi
  • Þau halda sinni rútínu, venjum og þekktu fæði.
  • Þau upplifa tengingu og nánd við dýraunnanda, því hópvistun hentar ekki öllum.
  • Meiri ró, minna stress, meiri vellíðan.
  • Dýrin njóta útiveru, leiks og samskipta á sínum forsendum í samstarfi eigenda og þjónustuaðila.

Fyrir eigendur

  • Þú velur traustan dýraunnanda sem hentar þínum þörfum.
  • Dýrið þitt fær að vera heima hjá sér eða á heimili þjónustuaðila, ekki í búri eða hópvistun.
  • Auðvelt er að finna þjónustu sem hentar, skoða prófíla og bóka, allt á einum stað.
  • Samskipti og greiðslur fara fram í gegnum öruggt kerfi á vefsíðunni.
  • Ef eitthvað kemur upp á getur Dýraþjónustan aðstoðað við að koma dýrinu í öruggar hendur.

Fyrir passara

  • Þú velur sjálf(ur) hvaða dýr, þjónustu og tímabil þú vilt taka að þér.
  • Njóttu samveru með dýrum án þess að skuldbinda þig við að eiga dýr.
  • Fáðu greitt fyrir að sinna því sem þú hefur ástríðu fyrir.
  • Vertu hluti af traustri og ábyrgri þjónustu.
  • Einfalt er að skrá sig og finna verkefni sem henta þér og þínum lífsstíl.

Um Dýraþjónustuna

Dýraþjónustan ehf er nýtt íslenskt fjölskyldufyrirtæki, stofnað af fólki með áralanga reynslu af dýrum og djúpa ástríðu fyrir velferð þeirra.

Við viljum hjálpa dýraeigendum að finna trausta og ábyrga þjónustuaðila sem bjóða upp á pössun, heimsóknir, göngutúra, umhirðu, þjálfun og fleira.
Hvort sem um er að ræða hund, kött, hest, fugl, fisk eða hamstur, þá finnum við lausn sem hentar ykkur, miðað við þarfir hvers dýrs og eiganda.

Við erum með tengiliði og aðstoðarfólk víða um land og getum brugðist fljótt við ef eitthvað kemur upp, til dæmis ef þjónustuaðili veikist eða þjónusta rofnar. Við viljum að þú getir treyst því að dýrið þitt sé í góðum höndum.

Vert að nefna:
Þessi vefsíða er splunkuný og í stöðugri þróun. Við erum að læra, laga og bæta og þiggjum allar góðar ábendingar með opnum örmum.
En markmiðið er einfalt: að skapa bestu mögulegu þjónustu fyrir eigendur og dýr.